Hæ!

Ég heiti Annsy og er ljósmyndari.
Eftir 7 ár sem tísku og auglýsingaljósmyndari í London
er ég flutt heim til Íslands.


Ég mynda fjölskyldur, brúðkaup, fermingar, útskriftir, bumbur, börn, módel, starfsmenn, auglýsingar og viðburði.

Í uppáhaldi hjá mér eru auglýsingar,
fjölskyldumyndatökur og börn.

Ég elska að grípa augnablikin, mynda litlu tásurnar,
knúsin, hláturinn og gleðina.

Ég er ennþá að mynda tísku og auglýsingar - þú getur séð myndir og meira um það hér:

Auglýsingar og tíska

Viltu vita meira, eða ertu tilbúin að bóka?

Endilega hafðu samband í gengum tölvupóst annsy@annsy.co eða fylltu út formið hér að neðan

 

UM ANNSY

Annsy bjó og starfaði í London sem ljósmyndari frá 2018-2026. Hún hefur myndað auglýsinga herferðir, fyrir tísku og förðunnar blöð, myndir fyrir fyrirtæki, myndir fyrir heimasíður, samfélagsmiðla og fleira.

Annsy er fædd og upp alin á Sauðárkróki. Hún keypti sína fyrstu myndavél árið 2016 og myndaði fjölskyldur, fermingar, útskriftir, bumbumyndir og brúðkaup til að safna myndum í portfolio og sækja um Ljósmyndanám. Árið 2018 flutti hún til London og lærði “Professional Photography” í Spéos Photography School.
Eftir námið hefur hún unnið sjálfstætt sem ljósmyndari og stofnaði seinna meir fyrirtæki sem bauð upp á ljósmyndaþjónustu og leigu á ljósmyndastúdíói.


Annsy hefur myndað meðal annars fyrir breska, íslenska, þýska, bandaríska, ítalska og indverska viðskiptavini.

Myndirnar hennar hafa sést á HBO, BBC, í yfir 40 neðanjarðarlestar stöðvum í London og í ýmsum tísku og förðunnar blöðum um allan heim,
Meðal annars: Harpers Bazaar Arabia, Marie Claire, Glamour, L’officiel, Lucy’s Magazine, Tribu-te UK, Photo Vogue Italia og fleirum

Annsy hefur myndað fyrir: HBO, Bad Wolf, Bellissima Italia, London Grace, The Organic Pharmacy, Iceland Cover, Beauty Science, Lyra Modest, Samtök sveitafélaga á Norðurlandi Vestra,Kaupfélag Skagfirðinga, Sveitafélagið Skagafjörður, La belle beauty Iceland, DCBN, og fleiri.

Þau sem hafa komið í myndatöku til Annsy

“Fórum í útimyndatöku hjá Annsy og það var svo afslappað, hún er með svo góða nærveru. Þriggja ára strákurinn minn talar ennþá um hvað þaðvar gaman og vill fara aftur! Myndirnar komu frábærlega út og við öll hæst ánægð!”

— Berglind Ösp

“Annsy fangaði öll bestu augnablik brúðkaupsdagsins og meira en það! Hún gefur frá sér svo góða orku sem skilar sér í náttúrulegum og óuppstilltum myndum - sem var akkúrat það sem við vorum að leita eftir. Gestirnir okkar tóku líka eftir þessu og höfðu orð á því hversu frábær ljósmyndarinn var. Þar að auki er Annsy bara svo ótrúlega fær í sínu fagi, að við vorum orðlaus þegar við sáum myndirnar! Mælum svo hjartanlega með Annsy.”

— Hildur & Martin

“Annsy náði strax til barnanna með húmornum, brosinu og uppörvandi athugasemdum, það leiddi til þess að allir urðu afslappaðir í myndatökunni.”

— Heiða Guðmundsdóttir

Spurt og svarað